Jæja elskurnar þá er ég að fara á kvöldvakt og nenni að hanga aðeins í tölvunni þangað til. Árið 2008 hjá mér var í grófum dráttum svona. Janúar: Fékk að vera viðstödd fæðingu Þorvalds Breka þann 9. janúar. Byrjaði að vinna 20%. Svanhildur byrjaði á fullu að standa upp við allt og byrjaði að skríða áfram á afmælisdag vinkonu sinnar hennar Emmu. Sama dag fréttum við að Lotta væri á leiðinni. Úti snjóaði allt í kaf og sást ekki út úr gluggum hérna í Sundstræti, mér fannst það frábært.... :)
Febrúar: Tók við sem starfsmaður skátafélagsins, hefði getað verið skemmtilegt en á endanum var ég mjög fegin að vera laus seinna. Siggi átti 32 ára afmæli. 15. febrúar á afmælinu hennar Höllu var einn erfiðasti dagur ævi minnar þegar amma dó (á afmælinu hans Henrý). Öll fjölskyldan kom vestur og þrátt fyrir erfiðan tíma var að sjálfsögðu gaman að hitta skyldfólk sem maður hittir alltof sjaldan. Amma var svo jörðuð 22. febrúar og fluttum við þá búferlum upp í Valhöll og lánuðum húsið okkar undir jarðarfaragesti að sunnan. Fór á Brautargengisnámskeið Impru fram í maí.
Mars: Byrjaði að passa Hjálmar Helgi frá 9-12, ágætis aukapeningur. Þá var ég í fæðingarorlofi ennþá, vinna fyrir skátana, 20% á sjúkrahúsinu og að passa... stundum þreytt. Skruppum suður með viðkomu á Tannastöðum. Svanhildur fór í þvagrannsóknir út af endurteknum þvagfærasýkingum. Skemmtileg og erfið ferð. Breki var skírður og við vorum vottar ásamt Þóru. Aldrei fór ég suður var haldið og fórum við bæði með Svanhildi og án hennar, mjög gaman. Páskarnir og fékk Svanhildur að sleikja páskaegg og fannst henni það mjög gott :)
Apríl:
Fórum aftur suður, í þetta skiptið í brúðkaup hjá Stínu og Agli. Og aftur vorum við á Tannastöðum. Átti eins árs afmæli á Tannastöðum, fékk þar pakka frá Ömmu á Engjavegi. Keyrðum svo heim og fengum afmælismat hjá ömmu og afa í Fjarðarstræti. Helgina eftir var svo haldið upp á afmælið með tilheyrandi veitingum og látum :) Tók fyrstu skrefin sín og byrjaði að labba í endaðan apríl. Halla og Doddi komu vestur og að sjálfsögðu var slegið upp partýi í Sundstrætinu.
Maí:
Aftur fórum við og eyddum helgi í Valhöll, dásamlegt að vera þarna. Í þetta skipti leigðum við húsið okkar undir Blakkellingar. Fórum nokkrum sinnum að skoða lömbin hjá Bjössa sem Svanhildi fannst sko ekki leiðinlegt. Í maí var keypt hjólakerra og varð húsfreyjan óstöðvandi að hjóla frá þeim tíma. Pabbi varð 60 ára án veislu og ég varð 28 ára með veislu.
Júní: Sumarbústaður í Borgarfirði og gæsun Höllu sem er ógleymanleg. Eftir gæsunina áttum við mæðgur góða stund með Sigrúnu, Þóru og þeirra grísum. Komum heim og eyddum tíma í gönguferðir um skóginn í góðu veðri. Fyrsta útilegan var 20 júní og var ferðinni heitið í Flókalund með Sigrúnu og co og mömmu og pabba. Frábær mánuður í einu orði sagt. Svo var náttúrulega útskrift og afmæli hjá Hafdísi sem var mjög skemmtilegt :)
Júlí: Fórum í útilegu aldarinnar með Hafdísi, Shiran og Jóni Gunnari. Var ferðinni í þetta skiptið heitið í Breiðavík. Þrátt fyrir þoku var þetta skemmtileg ferð í alla staði og getum við ekki beðið að draga Shiran í aðra útilegu.... Ferðinni var svo aftur heitið á Tananstaði seinna í júli og eyddum við þar helgi með frænda hans Sigga og hans fjölskyldu. Helgina eftir það var svo ferðinni heitið í tvær vikur í sæluna í Aðalvík. Ógleymanlegur mánuður og skemmtilegur í alla staði. Margt farið og skoðað, borðað góður matur, drukkið gott vín o.s.frv. Síðasti dagur mánaðarins fór svo í það að reyna að ná fiskibeini úr hálsinum á mér sem endaði svo með ferð heim einum degi fyrr til að komast undir læknishendur, þetta gekk svo allt saman vel en ég þáði ekki að eiga beinið :)
Ágúst: Það var nú ágætt að koma degi fyrr heim því þá var ég viðbúin næsta atburði en það var að vera "hjálparhella" í fæðingu Lovísu Matthildar. Frábær lífsreynsla og segi enn og aftur takk fyrir að leyfa mér að vera memm :) Við reyndum að fara í Flókalund á laugardegi um verslunarmannahelgina en veðrið lék okkur grátt þar (rok og aftur rok) og flúðum við því heim á sunnudeginum. Svo var það brúðkaupið skemmtilega í Ögri, frábær skemmtun í alla staði og að sjálfsögði nóg af veitingum...... bæði í föstu og fljótandi :) Frábært verður, yndisleg brúðhjón og yndislegir gestir :) Stór dagur í lífi litlu stelpunnar minnar því hún byrjaði á leikskóla þann 20 ágúst. Byrjaði vel, svo kom smá bakslag í mánuð eða tvo og svo er allt orðið frábært hjá henni á ný.... Svanhildur varð svo stóra "frænka" aftur í ágúst eða þann 26. þegar Irma Karítas Ralfsdóttir Trylla fæddist :)
September: Byrjar alltaf á afmæli mömmu og Elvars þann 1. Ákvað með nokkra klukkustunda fyrirvara að skella mér suður með mömmu og pabba, þarna var Gunnar frændi orðinn ansi veikur og pabbi fyrir sunnan aðra hverja viku. Þar fórum við í heimsóknir og hittum fullt af fólki og fórum við systur í 23 ára afmæli hjá frænku okkar, aldrei liðið eins og jafnmiklum sveitalúða og gamlingja og í því afmæli en svona er þetta bara ég er að verða 29 ára og ég bý svona eiginlega í sveit.... Tónlistardagurinn mikli var haldinn hér í bænum og vorum við með opið hús og buðum upp á fiðlutóna, lítil aðsókn í það þetta árið.....
Október:
Tókum slátur.... Gunnar frændi dó og tók þá við aftur á sama ári erfiður sorgartími. Þá fórum við mæðgur suður til að vera við jarðaförina, Svanhildur var reyndar hjá Ágústu Maríu á meðan en Svanhildur kom með í erfiðdrykkjuna, vorum yfir helgina fyrir sunnan því afi varð svo 90 ára á þriðjudeginum. 30 október lagðist svo Svanhildur inn á FSÍ með lungnabólgu og vorum við þar í 4 daga....
Nóvember: Fórum heim af sjúkrahúsinu.... Svo var bara ekkert sérstakt að ske þennan mánuð, ótrúlegt en satt.... Aðventan byrjaði og fórum við á torgið og sáum kveikt á jólatrénu.
Desember: Jólalaðborð í vinnunni, litlu jól hjá hjúkkunu, hinn saumaklúbburinn o.s.frv. semsagt nóg að gera í skemmtanalífinu þennan mánuðinn.... Jól og áramót frábær í alla staði ef frá er talin vinnan og svefninn sem henni fylgdi á eftir...
07. janúar 2009 klukkan 20:41
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 3 athugasemdir
Komin niður fyrir markmiði sem Árni setti mér í upphafi, þá eru eftir 4,9 kíló í markmiðið mitt, verð samt alveg sátt við 3,9 kíló.... Fór suður í viku fyrir viku... jarðaför og afmæli. Allt annað meinhægt, er í vinnunni og það er einmitt þar sem ég borða LANGmest... alltaf til kex o.fl..... á aldrei svoleiðis sjálf heima. Fórum í matarboð til herra og frú slick á laugardaginn sem var alveg frábært... takk fyrir mig enn og aftur. Nóvember á næsta læti og þá fara jólin að banka upp á hjá manni... Adios amigos
(andinn ekki alveg til staðar eins og er...)
27. október 2008 klukkan 19:49
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 4 athugasemdir
Þá er fyrsta vikan búin og hefur gengið vel... nema kannski að hemja mig í að fá mér smá kex og sætt í vinnunni... annars gengur þetta mjög vel. -2kg síðan á þriðjudaginn en það er samt ekki alveg að marka því þá var ég mæld eftir kvöldmat en í morgun eftir bara 1/2 banana.... en samt miða ég við þessa fyrstu tölu sem hann skráði hjá sér.
Annað bara gott...
Hilsen.... stúdíópían :) (loksins)
27. september 2008 klukkan 16:17
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 8 athugasemdir
... hófst í morgun klukkan tíu mínútur yfir sex... bara nokkuð gott og kom ég sjálfri mér á óvart á hlaupabrettinu, svo langt síðan að ég hljóp eitthvað inni og búin að hjóla og skokka í sumar að ég var ekkert smá ánægð með að hlaupa 2km án þess varla að blása úr nös... greinilega miklu erfiðara að hlaupa úti því ég hef nú ekki náð þessari vegalengt í sumar án þess að taka smá "labb" inn á milli... en ég meina einhversstaðar verður maður að byrja því ekki kemur þetta án erfiðisins (því miður). Mjög fínt í morgun og bara gaman að taka svona hressilega á... Á meðan á þessu átaki mínu stendur á ég nú örugglega bara eftir að blogga um það að mestu, bara svona eiginlega fyrir mig til að halda mér við efnið, en ef einhver hefur áhuga á að lesa það er það velkomið...
Allt annað bara gott, vinna, sofa, borða (hollt) og sinna prímadonnunni (er orðin ansi frek eftir að hún byrjaði á leikskólanum).....
Hrafnhildur bráðum fyrrverandi bolla :)
23. september 2008 klukkan 13:00
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 6 athugasemdir
Hver vill gefa mér pening svo ég geti gert allt það sem mig langar til að gera........ fyrir utan það að ég hef ekki tímann til að gera það allt þannig að mig vantar tíma líka. En allavegana, í dag er SUMARDAGURINN FYRSTI og til hamingju með það, veturinn kemur ekki aftur fyrr en eftir allavegana 5 mánuði (ég segi að hann komi aldrei fyrr en í september-október). Og þá meina ég veturinn með snjó og öllu. Er samt alveg búin að fíla þetta veður, finnst snjór skemmtilegur og góður. Svanhildur dafnar vel að sjálfsögðu og er hún enn að rembast við að labba, tekur nokkur skref á milli staða en þorir ekki að sleppa alveg. Einnig er hún farin að hneggja eins og hestur, ekkert smá fyndið.... hmmm Brautargengið fer að verða búið og er þetta búið að vera rosalega gaman og ekkert smá fínar konur sem eru á námskeiðinu með mér, maður á nú bara örugglega eftir að sakna þess að hitta þær ekki einu sinni í viku, spurning hvort við höldum því ekki bara áfram??? Sumarið óráðið en tek ég öllum tilboðum um ferðalag því Siggi verður að vinna eins og skepna í sumar, vetur og næsta sumar án þess að taka sér frí til að ná að klára samninginn áður en hann tekur síðustu önnina í skólanum haustið 2009. Þannig að ég verð þriðja hjólið allsstaðar í sumar. Passið ykkur ef þið viljið ekki fá mig með í ferðalag, ekki segja mér þá frá því að þið séuð að fara eitthvað því þá fer ég heim að pakka niður..... muahahahahaha. Vá, mig langar svo að segja svo margt núna en heilinn er steiktur eftir vökuna í nótt... sjáum til á næstu næturvakt, þetta verður svona næturvaktablogg hjá mér.... nenni þessu aldrei heima, er eiginlega að fá OÐNÆMI fyrir tölvunni minni. Partý á föstudaginn fyrir útvalda til að fagna vesturför fjölskyldunnar í Laufrima og verður mikið glens og grín eins og okkur er einum lagið, nema Heiða verður örugglega leiðinleg af því að hún er ólétt.... DJÓK..... hahahaha, vá púkinn kominn í mig líka, ég læt ekki segja mér það tvisvar og kveð í bili....
24. apríl 2008 klukkan 07:09
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 5 athugasemdir
þetta blogg er eins og kvöð.... ég hugsa um það á hverjum degi og kíki sjálf daglega, bara þá til að athuga hvort ég hafi skrifað heillangan pistil í svefni eða þá kannski bara einhver gert það fyrir mig. Mér bara dettur aldrei neitt í hug að setja hérna inn... Brautargengisnámskeiðið á eftir og svo vinna til miðnættis :) ROCK ON p.s. ætla ekki ALLIR á aldrei fór ég suður um páskana, ég og Svanhildur ætlum pottþétt því við komumst ekki í fyrra og aldrei að vita nema Siggi fái að koma með :) Nú ætlar Svanhildur að skrifa sína 1. bloggfærslu tghv j wcfdurfdrfdcbeurefdbu7ndfvrgvnidu77ydfc6hujvfbgyhrfedfdgyhhgjnmhgbvcv cv °vb gvgbcv cv
05. mars 2008 klukkan 09:31
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 7 athugasemdir
19desember
Frægð minni er nú ekki aldeilis lokið því ef þið horfið á sjónvarp og sjáið auglýsinu frá 66°norður sem óskar ykkur gleðilegra jóla má þar sjá slotið okkar að Sundstræti 37. Tekið núna í desember þegar ég var búin að setja seríur í gluggann og svo var aldrei þessu vant snjór á þakinu... Rosalega jólalegt og flott. Á auglýsinguna í tölvunni en get ekki sett hana hér inn.... Ég get alveg sent hana ef einhver er að rifna úr spenningi.... (ein ógeðslega montin og er ekkert að reyna að fela það)
Jólakveðjur
19. desember 2007 klukkan 22:01
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 5 athugasemdir
Hann semsagt hófst í kvöld með frumsýningu á Duggholufólkinu. Þeir sem hafa gott minni muna kannski þegar ég sagði frá því að ég sagði eina setningu í myndinni þegar hún var tekin upp á sjúkrahúsinu síðasta vetur. Setningin var ,,það má ekki vera með hunda hérna inni".... o.k. fékk boðsmiða fyrir tvo á frumsýninguna en komst ekki sökum jólaanna og sendi því Þóru systir og Bjarka sem mína fulltrúa með farteskið fullt af árituðum myndum af mér fyrir aðdáendur. Bjarki sagði "besti leikur aldarinnar" eftir frumsýninguna... Þóra hringdi semsagt í mig þegar myndin var búin í hálfgerðu sjokki... beið voða spennt eftir litlu systir og sá hana svo á skjánum og svo bara HAAAAAA bíddu nú við, var Hrabba systir í mútum eða.... af hverju er hún svona dimmrödduð??? OK ég var semsagt talsett.... hahahahaha veit ekki hvort ástæðan sé mín ómótstæðilega unglega rödd eða hvort það bara heyrðist ekki í mér.... anyways held að ég verði semsagt ekki leikkona ef ekki er hægt að nota röddina mína í myndunum sem ég leik í.... hahaha bíð spennt eftir myndinni en samt með hnút í maganum að þetta sé svo asnalegt að ég eigi eftir að ganga með hauspoka. Hvet ykkur til að hafa augun og EYRUN opin ef þið sjáið myndina.... Ást í poka
05. desember 2007 klukkan 22:17
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 5 athugasemdir
er snillingur. Fór á útgáfutónleikana í Edinborg í gær, þeir voru klikkaðir. Langt síðan ég hef farið á svona góða tónleika. Hann náttúrulega snillingur og svo strákarnir sem voru með honum, Pétur Ben og Davíð Þór og svo trommarinn og bassaleikarinn sem ég man ekki hvað heita. Þeir voru allir frábærir og platan Mugiboogie er líka snilld.... Hvet alla til að kaupa diskinn, kostar bara 1799 með heimsendingu og ókeypis niðurhali :) Fara á heimasíðuna og panta diskinn.....
07. nóvember 2007 klukkan 12:29
Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir 2 athugasemdir