14júní
nema eitthvað stórkostlegt gerist sem ég verð að segja ykkur frá.
Hafið þið það gott í sumar, veit að ég ætla að gera það.
Góðar stundir
05júní
Varð að blogga aftur í dag, sá á blogginu hennar Guðbjartar Lóu að hún lést í gær....
Þarna var sko alveg einstakt eintak á ferð, aðra eins hugsun og baráttu hef ég bara ekki vitað um. Finnst þetta alveg ótrúlegt, las alltaf bloggið hennar og var svo viss um að hún myndi sigrast á þessu.....
Sagt er að þeir deyji ungir sem guðirnir elska, held að það sé tilfellið hér. Finnst ótrúlegt hvað ég tók miklu ástfóstri við þessa stelpu, hitti hana bara einu sinni og ég á aldrei eftir að gleyma henni.
Hvíl í friði
05júní
Nú er sko kominn ferðafílingur í okkur. Fórum á síðustu helgi í Reykjafjörð við Arnarfjörð og gistum í húsbílnum hjá mömmu og pabba, ekkert smá næs. Nú er stefnan tekin í Hrútafjörðinn en ætlum við fyrst að bruna til Reykjavíkur og skipta um bíl, er alveg komin á þá skoðun að maður þarf bíl með skotti þegar hefur fjölgað um einn í fjölskyldunni. Vagninn verður að komst fyrir í bílnum ásamt öllum öðrum farangri..... En kæru vinir í Reykjavík, ekki örvænta því ég kem aftur í júlí. Nú er sko aldeilis farið að styttast í Þýskalandsferðina okkar, áætluð brottför er 16 júlí. Ég kem til með að kíkja í heimsókn til sem flestra þá, get það því miður ekki núna þar sem við ætlum bara að heimsækja bílasölur á þessum eina degi. (Brynja og Gummi! ég rukka ykkur sko um kökuna í júlí).
Vá..... hef ekki frá fleiru að segja....... GLATAÐ.
Ætla að enda þett á einum gömlum og góðum síðan ég var að vinna á bandinu í Básafelli........þetta var það allra fyndnasta þá.
Fíll og mús voru á leið yfir brú.
Fíllinn: Mikið svakalega brakar í brúnni. Ég held hún sé hreinlega að detta í sundur.
Músin: Það er nú engin furða þegar við erum bæði á henni í einu.